Þá held ég af landi brott í nótt - fer út á flugvöll eftir ca 3 tíma - allt pakkað og klárt. Er á leið til London, verð þar í sólahring og fer þaðan til Króatíu! Við mæðgurnar erum að fara saman
Ég reyni að blogga úti ef ég hef tækifæri til en ef ekki þá heyrumst við og sjáumst 14. júní. Ég lendi um 16.00 Þið reynið að lifa af án mín !
Btw, ég er búin að setja myndir frá útskriftinni og smá frá road-trip-inu okkar Bjarna =)
Au revoir!
María - heimsborgari
04. júní 2007 klukkan 02:11
María L. Guðjónsdóttir Engin athugasemd
María með ykkur hér á þessum frábæra fimmtudegi Það er ótrúlega hlýtt úti og þó að það sé vindur þá er hann samt hlýr! Það gerist ekki oft hérna á klakanum! Ég verð samt að segja að ég sé helvíti sátt bara!
Ég er mest lítið búin að vera að gera undanfarið - vinna og hanga með Bjarna mínum .. Við ákváðum um daginn að horfa á Dawsons´s Creek þættina frá upphafi! Bjarni á þetta allt á dvd og ég hef aldrei séð þá .. svo við byrjuðum um daginn að horfa og erum búin með fyrstu 2 diskana - og vá, þetta eru geggjaðir þættir! Þegar þeir voru sýndir hérna á stöð 2 þá var ég ekki með stöð 2 svo ég hafði bara heyrt um þá en aldrei séð einn þátt! - Og hvað hef ég betra að gera en að horfa á dvd?
Ég verð að vinna á Pizza Hut á símanum í sumar líkt og síðasta sumar - og eru vaktirnar þar aldrei fyrr en 16-20 eða 18-21, nema um helgar þá er lengsta vaktin 11.30 - 20 - svo ég er bara að njóta þess að vera laus úr skólanum og komin í sumarfrí! Ástæðan fyrir því að ég réð mig ekki í aðra vinnu er sú að ég er bara á landinu í einn og hálfan mánuð í sumar! - Ég fer núna á mánudaginn (4.júní) til London og þaðan til Króatíu og kem heim aftur 14.júní. Við mæðgurnar erum að fara í brúðkaup hjá Thelmu frænku og hennar heittelskaða Hrvoje Það verður án efa ótrúlega skemmtilegt og mjög gaman að fara í brúðkaup annarsstaðar en hér heima - svo treysti ég Thelmu til að vera með uppistand, dansatriði og söngatriði svo að mér leiðist ekki - er það ekki annars Thelma mín?
Ég fer svo 1.ágúst - 23.ágúst til Tenerife með systrum mínum - það verður nice! Afslöppun, sólböð, sund, verslunar og skoðunarferðir í 3vikur ! úff - get ekki beðið
Eini ókosturinn við þessar ferðir að ég mun sakna Bjarna helvíti mikið - en ég vona að við getum eitthvað verið saman í júlí Ég stefni allavegana á 2 útilegur í sumar - það er markmiðið! Ertu með Bjarni?
En jamm - ég er að fara að vinna núna klukkan 18-21 .. og áður en það verður gert ætla ég á bókasafnið og næla mér í góðar bækur
Við heyrumst fólk!
María - ferðalangur
31. maí 2007 klukkan 15:21
María L. Guðjónsdóttir 5 athugasemdir
Þá er María Lovísa Guðjónsdóttir orðin stúdent! Ég sem sagt varð það á föstudaginn síðast liðinn .. og vá .. stórkostlegt að vera búin að ná þessum áfanga !
Ég vaknaði snemma þennan daginn og fór í bað og gerði mig fína og sæta - Elín Helga hjálpaði mér við það ! Enda stílisti fjölskyldunnar Klukkan 11.30 var svo myndataka upp í MYND - fyrst voru teknar myndir af mér og svo allri fjölskyldunni - eftir það brunaði ég samferða Hönnu upp í skóla - en þar var myndartaka fyrir skólann - eftir það fórum við Hanna og Hrafnhildur og keyptum okkur það eina sem við höfðum efni á í sjoppunni sem gat gert okkur alla þrjár saddar í smástund - EPLATRÓPÍ! Það virkaði nokkuð vel! Svo var athöfnin sjálf kl. 14.00 í Digraneskirkju - hún var bara fínt - tók rúman einn og hálfan tíma. Skemmtilegt er að segja frá því að ég fékk verðlaun fyrir að vera hæst í dönsku! Ójá, hún María ykkar er dúx skólans í dönsku vorið 2007! Toppið það! Það kom mér skemmtilega á óvart og er ég bara mjög stolt af þessum titli!
Hrafnhildur mín varð dúx í viðskiptagreinum! Hún átti það fyllilega skilið! Til hamingju RASSgat!
Eftir athöfnina fór ég í salinn þar sem veislan var haldin (Rafveituheimilið í Elliðárdalnum) Og þá hófst hin langa bið eftir því að byrja að borða Eftir að flestir af mínum yndislegu gestum voru komnir þá var hafist handa við að koma sem mestu ofan í sig af hinum dásamlega kræsingum sem í boði voru! tengdaforeldrar Árnnýjar sáu um þetta og var þetta ótrúlega gott. Ásthildur vinkona mömmu átti heiðurinn af kransakökunni og marsipankökunni .. og vá! Þetta var allt svoo gott!!
Um 19.30 héldum við systurnar ásamt pabba mínum á Skagann til langömmu .. Við knúsuðum gömlu konuna og sátum og spjölluðum í smá stund og svo tók pabbi mynd af okkur Ég hendi inn myndum frá deginum og dimmiteringunni sem fyrst !
Ég kom svo heim um tíu leitið og Oddur og Helga kíktu við. Þá opnaði ég gjafirnar og þær voru allar frábærar! Ég fékk 75þús í peningum, sérhannaða skartgripi frá ömmu og afa, Helga málaði epla mynd fyrir mig sem er svo geðsjúkt flott og mig hefur langað í svona síðan ég sá hennar fyrstu mynd! , ég fékk World Atlas, lampa, Ritzenhoff glas, skartgripi og fleira! Já ! og 21" sjónvarp með dvd spilara frá fjölskyldunni!! Takk allir fyrir allt !
Bjarni minn kom svo aðeins seinna um kveldið með æðislegan blómvönd sem hann valdi allt sjálfur í ! - Svo gaf hann mér melónutyggjó (sem ég elska), launamiða (happaþrennu), tvo bangsa - einn sem er svona bangsabangsi - geggjað mjúkur með bumbu! og hinn er ljón og heitir Ljónsi (sérstök meining á bak við hann ), svo fékk ég gjafabréf fyrir 2 í Þjóðleikhúsið, bleikt kerti, bókina "Á ég að gæta systur minnar?" (sem mér hefur langað í síðan um jólin og Bjarni vissi ekkert um það) og svo silfurhálsmen með litlu hjarta á með steini, ótrúlega sætt og flott - Ég var ekkert smá ánægð með þetta allt og er einmitt með hálsmenið á mér, bangsarnir sitja hérna við hliðina á mér og ég er búin að lesa bókina! Takk elsku Bjarni minn!!
Um kveldið gisti Bjarni svo hjá mér og við gátum horft á nýja sjónvarpið!
Þetta var frábær dagur í alla staði og laugardagurinn var ekkert síðri! Þá vöknnuðum við Bjarni um 9.00 og við fórum með hann í augnskoðun (fyrir flugskólann) - eftir það ákváðum við að skella okkur á Road-trip.. fórum á Gullfoss og Geysi og enduðum í Reykholti og fórum í sund þar og spiluðum smá fótbolta - ekkert smá nice!
Jæja.. ég held að ég láti þetta gott heita í bili
Sjáumst!
María - stúdent
28. maí 2007 klukkan 20:20
María L. Guðjónsdóttir 7 athugasemdir
Já... þá hef ég ákveðið að hefja skrif á ný - ykkur sennilega til ómældrar ánægju og gleði!
Ég sem sagt ákvað að búa mér til nýja síðu og leyfa ykkur að fylgjast með mér í gegnum hana. Það er endalaust margt að frétta samt og hafa miklar breytingar orðið á síðan síðast - sennilega eitthvað sem flest ykkar hafa frétt af
Þann 9.mars síðast liðinn ákvað ég að tími okkar Þórs væri liðinn sem heild. Við erum sem sagt ekki trúlofuð lengur og ekki lengur saman .. Það er allt liðið undir lok. Ég er samt ótrúlega hamingjusöm og ánægð með ákvörðun mína sem allir virtu og studdu.
Ég var samt ekki lengi laus og liðug heldur festi ég ráð mitt enn á ný þann 21.apríl 2007. Sá heppni heitir Bjarni H. Halldórsson - og má geta þess að við vorum saman fyrir 5 árum síðan - Hann er frábær strákur sem ég er ótrúlega hrifin af og er ég mjög ánægð að við séum aftur saman .. lengi lifir í gömlum glæðum
Svo er ég að útskrifast þann 25.maí næst komandi og get ég ekki beðið! :) Ég er sem sagt búin að fá út úr öllum prófum og náði öllu! Svo þetta er allt pottþétt og er ég ótrúlega stolt af mér að vera búin með þennan áfanga.
Ég er mjög sátt - enda 23 einingar í höfn :) Eða 143 einingar í allt og þarf maður 140 til að útskrifast
Ég ákvað svo að ég væri ekki til í 3 ára bóklegt háskólanám en vildi samt mennta mig eitthvað. Svo ég skráði mig í Ferðamálaskóla Íslands sem er uppi á Höfða í ferðaráðgjöf og komst ég inn - og byrja þar í haust. Þetta er hálfs árs nám byrjar í sept og lýkur í mars og verð ég þá komin með alþjóðlega gráðu í ferðaráðgjöf sem hentar mér ofurvel enda er ég þekkt fyrir að vera mikið á ferðinni
En já - þetta er svona allt það helsta! :)
Ég er þotin!
Ciao!
María - hamingjusöm og sátt við lífið!
20. maí 2007 klukkan 22:39
María L. Guðjónsdóttir 3 athugasemdir