Allt að gerast! :)

Sæl veriði!!Ullandi

Já.. ég er ekki alveg nógu dugleg að blogga kannski Glottandi

Allavegana þá er allt að gerast þessa dagana! .. Formlegri kennslu í skólanum mínum er lokið. Það eina sem er eftir er alþjóðlegt próf úr náminu sem er á föstudaginn (14.mars). Ég mun reyndar ekki geta einbeytt mér jafn mikið að því og ég hefði viljað vegna þess að ég er að fara í inntökupróf fyrir leikaradeild LHÍ á laugardagsmorgun (15.mars) kl. 8.15 .. Brosandi Þar sem ég ætla loksins að láta drauminn minn rætast um að læra leiklist. Þetta er sem sagt fyrsta þrep og er ég búin að vera að læra 3 texta sem ég valdi mér .. Ég flýg að sjálfsögðu í gegnum öll 3.þrepin sem þarf að komast í gegnum til að fá skólavist Hlæjandi Það eru sem sagt 125 umsækjendur og af þeim fá að hámarki 10 skólavist... sem sagt ég og 9 aðrir Glottandi

--

Það er alltaf svo erfitt að blogga þegar maður hefur ekki bloggað í langan tíma!

Allavegana þá er búið að velja framlag okkar Íslendinga til Eurovision og ég er mjög sátt! .. This is my life eftir Örlyg Smára (enskur texti: Páll Óskar) í flutningi Friðriks Ómars og Regínu Óskar var valið! Af þeim lögum sem kepptu á úrslitakveldinu var þetta mitt lag! Hlæjandi Hey, hey, hey, ho, ho, ho lagið var svona þeirra helsti keppinautur .. en ég tel að allar þessar auglýsingar og fleira sem var vikuna fyrir keppnina hafi frekar orðið þeim að falli! Grípandi lag samt sem áður .. en tjah .. ég var ekki til í að fá þau út til Serbíu.
Mitt lag samt ef ég vel af öllum þeim sem kepptu í undankeppnunum var án efa Haffi Haff með lagið Wiggle wiggle song eftir Svölu Björgvins! Það var geggjað lag og þá í þeim búningi sem það var fyrst (það var atriðið sem ég féll fyrir) Brosandi

---

Ég er líka komin með fullnaðarskírteini en eins og flest ykkar vita þá fékk ég mér ekki bílpróf fyrr en ég var 19 ára gömul.. þann 10.mars nánar tiltekið! Svo í gær þá missti ég prófið Glottandi og eins og hinn týpíski Íslendingur fletti ég upp á Gulu síðunum einhverjum ökukennara og hringdi til að fá tíma.. sem ég og fékk í morgun klukkan 10! Glottandi Ég keyrði í einhvern hálftíma og hún (já kennarinn var kona) var bara ánægð með mig.. ég er allavegana yfir meðallagi góður ökumaður og alveg svakalega jákvæð fannst henni! Svo ég er að fara til sýslumanns í Hafnarfirði til að fá fullnaðarskírteini Hlæjandi

---

Næsta tilhlökkunarefni er svo afmælið hennar Árnnýjar sem er á laugardaginn þar sem við ætlum að djamma af okkur rassinn! Hlæjandi

Svo er það út að eta með familíunni á Argentínu 22.mars

29.mars þegar ég held afmælið mitt !! (á samt afmæli 30.mars.. en 29. er laugardagur.. svo ég mun vera að halda upp á það þegar 30. brestur á )

9. apríl þar sem ég fæ að vita að ég er komin inn í leiklistarskólann

18-20.apríl því þá erum við Árnný úti í Köben í tívolíi og djamma með elsku Sigrúnu Yrju okkar

9-16.maí því þá fer ég með mömmu og pabba til Danmerkur sem hjálpari Brosandi

oooooog

1. - 22.júlí þegar við systurnar förum til Tenerife!! Hlæjandi

---

já! skemmtilegir og spennandi tímar framundan hjá undirritaðri! Glottandi

--
 
Heyrumst;)

María - Busy! Brosandi
11. mars 2008 klukkan 11:47
María L. Guðjónsdóttir
Ingunn ;* skrifar ...
Þú átt án efa eftir að fljúga í gegnum þessar prufur, enginn vafi á því! ;)
- Og The Wiggle Wiggle song er best! Fýla það í tætluar.. haha :$
11. mars 2008 klukkan 16:55
Ása skrifar ...
vá hverjar eru eiginlega líkurnar á þessu!? haha. ég kíki mjög sjaldan inná þetta blogg afþví ég gleymi því alltaf en svo ákvað ég að kíkja núna og þá ertu bara nýbúin að blogga!!:D ég hef fengið eitthvað hugboð :) sund á eftir? úje...
12. mars 2008 klukkan 10:07
Hrafnhildur skrifar ...
já róleg að vera eitthvað að búin að blogga um að halda upp á afmælið þitt þarna en ekkert tala um það hmm.. ha ..hmm..
verður sem sagt pottþétt partý 29? mér er illa við þegar fólk segist ætla að halda upp á afmæli og beilar ;) (krissi) =Þ

Fótbrotnaðu!

hehe =Þ
(*brake a leg)

Ég treysti á þig og hef fulla trú á þér!! ;*;*
14. mars 2008 klukkan 23:52

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: María L. Guðjónsdóttir
  • Netfang: mariakjani@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...