María Superstar!! ;)

Hæææ! :)

Ég verð nú barasta að henda inn smá bloggi og segja ykkur frá ýkt mega frábæru föstudagskveldi í lífi mínu! Glottandi

Ég, Árnný og Sigrún Yrja ákváðum að skella okkur á ball á föstudaginn s.l. og var uppáhalds hljómsveitin okkar Árnnýjar að spila "Í svörtum fötum" Brosandi Ballið var haldið á Players og við komum á fínum tíma, Brynja var að selja miða og auðvitað gaf hún okkur góðan deal á miðunum .. takk takk fyrir það Koss

Svo stigu Jónsi og félagar á svið og byrjuðu að spila og við dönsuðum eins og brjálæðingar!!

Eftir að þeir hefðu spilað nokkur lög stoppuðu þeir aðeins og sögðu "Jæja í næsta lagi þurfum við að fá gestasöngkonu á svið" og allar stelpurnar öskruðu og réttu upp hönd og þeir héldu áfram "Það er upprennandi stjarna og hún heitir María og er þarna" Og svo var bent á mig!! .. Og ég hugsaði "vá, snillld... en sjitt fokk ég er pínu stressuð" Því það skal tekið fram að ég var bláedrú!! Brosandi og þá tóku þeir Rocky Horror lagið "Tökum eitt tíðhnitið enn" og ég var dregin upp á svið og söng kafla í því lagi og svo byrjuðu þeir að spila "I will survive" og ég átti bara að syngja það!! og ég kann ekkert alveg textann við það.. og var frekar svona sjokkeruð yfir þessu!! hehe :) en Jónsi bara söng með mér í mic-inn og dansaði við mig og þetta var baaara snilld.. enda uppáhaldshljómsveitin mín og ég meina hver vill ekki dansa og syngja með Jónsa??!! Fyrir utan Pétur kannski ;) hehe Hlæjandi Æjj þetta var bara mergjað og ég er ógeðslega montin og stolt af þessu !
Hlæjandi

En já... svo að ég útskýri kannski smá af hverju þeir vissu nafnið mitt og svona.. þá var ég sem sagt að syngja í leikriti MK vorið 2006 í Rocky Horror og þá sá Keli (gítarleikari Í svörtum fötum) um að þjálfa okkur sem vorum að syngja....og ég pældi einmitt í því hvort að hann myndi eftir manni síðan þá... og well... GREINILEGA HlæjandiGlottandi

Ég vildi bara deila þessu með ykkur kæru lesendur ;)

Kveðja,

María - Í svörtum fötum
! Glottandi
30. desember 2007 klukkan 17:01
María L. Guðjónsdóttir
Ingunn ;* skrifar ...
Fræga kellingin mín ;)
Mega upplifun!! :D
31. desember 2007 klukkan 02:58
Thelma og co skrifar ...
Ohhhhhhhhh ég eeeeeeelska Jónsa :) Jii hvað þú ert heppin María, mmmmm þetta hlýtur að hafa verið ofsa ofsalega gaman :)

kv Thelma frænka
01. janúar 2008 klukkan 02:50
Brynja Ingimarsdóttir skrifar ...
Þetta var bara algjör snild :)

Gleðilegt Nýtt ár :)

kv
Brynja
03. janúar 2008 klukkan 09:32
Ása skrifar ...
halló? blogga eða?? :) i need something to read!!
04. janúar 2008 klukkan 11:24
Ína skrifar ...
Hehe lökkí bara..;) Ég held að ég myndi bara
panikka á því..:D lol
Þú og eingin önnur átti þetta skilið ástin;*
Lov ya:*
07. janúar 2008 klukkan 20:57
hrafnhildur skrifar ...
haha þetta er svo mikil snilld!! vildi óska að ég hefði verið þarna til að sjá þetta!! =D=D ég hefði kannski bara smellt mér upp á sviðið og dansað með þér ;) smellt mér á nærfötin hahahahahahahah :D æ snilld!
10. janúar 2008 klukkan 15:36

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: María L. Guðjónsdóttir
  • Netfang: mariakjani@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...