Ahhh...

... vá hvað maður getur borðað endalaust yfir jólin!

Ég er reyndar nývöknuð núna svo ég er lítið sem ekkert búin að borða í dag en síðustu dagar hafa verið fínir í þeim málum! Glottandi Enda jólin!!

Aðfangadagur var ótrúlega nice, við borðuðum reyndar í seinna laginu eða klukkan 19.20, enda ekkert að flýta okkur neitt!! Brosandi Þá var borðuð rjómalöguð jólaaspassúpa í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og svo búðingur í eftirrétt (átum hann reyndar eftir pakkana). Eftir matinn gengum við systurnar aðeins frá eða reyndar gekk Árnný aðalega frá Ullandi og við hin meltum aðeins!

Við tókum svo upp pakkana sem er alltaf jafn gaman !! Brosandi  Ég fékk alveg margt og mikið í jólagjöf en besta gjöfin er án efa gjöfin frá mömmu og pabba en hún er í raun alveg ómetanleg!! Enda fór ég að gráta þegar ég fékk hana og já.. vá.. kom mér ótrúlega á óvart.. en ég vil ekki segja hvað það er hérna á veraldarvefnum Hissa Brosandi

Við systurnar ákváðum að skella okkur í miðnæturmessu í Fríkirkjunni í Reykjavík! Páll Óskar og Monika sáu um tónlistina og þetta var algjörlega þess virði að skella sér! Held að við gerum þetta að árlegum viðburði! Meira að segja Elín Helga skemmti sér!! Glottandi

Eftir það fórum við heim og spiluðum Partý&Co! :) Þetta var ofur nice aðfangadagskvöld eins og áður kom fram Ullandi

Á jóladag var svo rólegheitadagur dauðans! Maður át afganga og nammi og svo var horft á sjónvarp! Bara öll fjölskyldan saman í rólegheitum!

Í gær (annan í jólum) þá var jólahangikjöt hjá ömmu&afa og kartöflusalatið hennar ömmu var með (og það er ofur gott!!) við borðuðum bara í rólegheitum og svo skelltum við Árnný okkur í bíó með Sigurjóni og Jonna á mynd sem heitir "We own the night". Hún var mjög góð! Eftir það fengum við okkur pizzu og svo horfði ég á "The Holiday" með mömmu.. úff þetta er svoooo góð mynd! Ef að þú hefur ekki séð hana .. SJÁÐU hana!! Hlæjandi

Jáh .. í dag er planið að reyna að klára ritgerð sem ég þarf að skila 7.janúar, hef litlar áhyggjur af henni svo sem.. svo er helgin plönuð! og svo eru áramót! Sem er skemmtilegasti dagur í heimi finnst mér.. allavegana skemmtilegasta kvöld! Ullandi Þá ætla ég á Broadway! Svo komið þangað allir!! Hlæjandi

OG JÁ!! Fréttir, fréttir !! Ég og Árnný erum að fara að leigja saman! Íbúð á Bræðraborgarstíg í 101 Reykjavík!! 3ja herbergja íbúð, 74 fermetra!!  Við flytjum inn fyrstu helgina í janúar! allavegana ekki seinna Hlæjandi Fáum hana væntanlega afhenta milli jóla og nýárs! Til hamingju við!!! Hlæjandi

En jáh, ég er farin út að skafa bílinn og skella mér og sæka Litla (Elínu Helgu) í vinnu..

Vona að þið hafið átt frábær jól!! og komið á Broadway með mér um áramótin!! Hlæjandi

Ykkar,

María - jólabarn!

27. desember 2007 klukkan 11:37
María L. Guðjónsdóttir
Hanna Maggý KristjánsdóttirGleðileg Jól enn og einusinni :) Til hamingju með íbúðina, nú verður þú fastagestur hjá mér á Domoino's :)

Vonandi sé ég þig um áramótin ;)

27. desember 2007 klukkan 17:57
Ása skrifar ...
hæ :) mikið er gaman að vita af þessu bloggi :) reddaðir alveg málunum fyrir mig þarna gamla :) (er svo löt í vinnunni að ég nenni ekki að gera neitt nema lesa blog) hehe. En komdu nú brátt á msn því ég er að verða búin að lesa !! þú hefur ekki gott af öllum þessum svefn! ;)
28. desember 2007 klukkan 08:45
Ína skrifar ...
Gleðileg jól sæta ;* Vonandi áttiru hin bestu jól. :D

Systrakveðja Ína..;*
28. desember 2007 klukkan 18:41
Peter skrifar ...
vä til hamingju meü ibudina, fokkkopp tysk lyklabord thar sem y er a stadnum thar sem z er venjulega....
kv. ur naked Spa her i Austturriki :)
30. desember 2007 klukkan 14:15

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: María L. Guðjónsdóttir
  • Netfang: mariakjani@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...