Snjór.. eða hvað? :P

Helló! =)

Jahá.. snjór féll hér fyrir helgi.. Ég er ekki mikill aðdáandi hans ef satt skal segja UllandiÓákveðinnSvalur
Enda ekki bretta eða skíðamanneskja svo mér finnst ekkert svakalega gaman að hafa snjó. Mér finnst það alveg smá kósí og hann má alveg vera hérna á aðfangadag! En ég fíla ekki alveg kuldann sem fylgir honum og að þurfa að skafa og svoleiðis Eeeennn hann stoppar nú ekki lengi, komin rigning og er hann að mestu farinn..


Um helgina var haldið í smá road-trip. Það var afmæli hjá Magga og Pétri á laugardag. Það var haldið á Laugabakka sem er svona 2 tíma og 30 míns frá bænum. Ég fór ásamt Krissa, Helgu, Hönnu og Ingunni í bíl.. við lögðum af stað úr bænumum 18.00.. okkur seinkaði smá vegna þess að starfsmenn Heiðrúnar eru fávitar UllandiNenni svo sem ekkert að fara nánar út í þá sálma .. ég allavegana nenni aldrei að fara þangað aftur! Nei takk!

Við stoppuðum og fengum okkur að borða í Hyrnunni og vorum komin á leiðarstað um 20.30. Þá var fólkið komið.. við byrjuðum bara að drekka og skemmta okkur. Þetta var bara mjög skemmtilegt.. allir gistu þarna. Þetta er svona félagsheimili svo allir sváfu bara á dýnum! Fólk var alveg í misjöfnu ásigkomulagi! Haha .. og voru nokkrir sem dóu bara.. en enginn í okkar vinahóp.. enda partýdýr mikil! Ég var nú aðalega að skemmta mér með Ingunni minni og vorum við í góðum fíling með bling-blingið okkar Glottandi


Lögðum svo af stað heim daginn eftir um 13 leitið.. stoppuðum og borðuðum smá í Staðarskála og svo í bæinn =) Ég vann svo um kveldið .. Ég svaf 3 og hálfan tíma um nóttina svo ég var nett þreytt Glottandi

Eini mínusinn við ferðina var að Hrafnhildur mín komst ekki af því hún er helvítis klaufi sem tognaði svona illa þegar hún var aaaaðeins of dugleg á jazzballet æfingu Óákveðinn
ALGJÖR klaufi! ...Hittumst reyndar og fórum á ísrúnt í gær ásamt Helgu svo það var smá bót á máli =D

Í gær var svo farið í ræktina .. ég og Árnný erum svo duglegar! .. EN já.. af þvi að þetta var busy-helgi og ég er ekki alveg nógu dugleg ung stúlka þá hafði ég ekki lært mikið undir próf sem við tókum í gær í skólanum. Það var sem sagt úr 2. kafla sem heitir "Geography in Travel Planning 1" þar eru kóðarnir góðu einmitt og fleira og fleira. Ég er samt alltaf mjög róleg yfir svona prófum. Og ég fékk 7,4 og bara mjög sátt. Miðað við að fólk var að fá svipað og ég og kannski einum hærri sem var búið að lesa og læra kannski alla helgina Glottandi Geta ekki allir verið svona klárir eins og ég sko! Hissa Glottandi Ég er allavegana pollróleg fyrir lokaprófið sem verður um miðjan mars. Þarf kannski bara að lesa aðeins í bókinni minni! Það er allavegana ekkert slæm hugmynd! Óákveðinn

Jáá...

Ég verð nú líka að segja ykkur eitt! Þegar ég kom heim frá Laugum fyrir viku sem sagt. Þá var hún yndislega móðir mín búin að taka alveg til í herberginu mínu, sem sagt taka drasl, þurrka af, ryksuga og gera allt svona "mömmufínt" ef þið vitið hvað ég á við með því. Kannski er það bara orð sem dekurrófur eins og ég skilja Glottandi Og hún var búin að breyta smá af því ég var búin að tala um smá breytingar sem ég vildi gera... þetta var svo nice! .. Enda er ég búin að vera mega dugleg að halda því hreinu!! Hlæjandi TAKK elska mamma mín! Koss

Í kvöld ætla ég bara að vera róleg og kannski horfa á eina dvd-mynd. Hef ekki gert það bara í áraraðir! =D

OG! Það eru aðeins 22 daga í New York sem ég get ekki beðið eftir! .. Ég hef aldrei hlakkað jafn mikið til utanlandsferðar. Er alveg ótrúlega spennt! Þetta verður ÆÐI!

En yfir og út!

María - dekurrófa! Saklaus
30. október 2007 klukkan 19:21
María L. Guðjónsdóttir
Ingunn ;* skrifar ...
Gaman að djamma með þér krús ;*
- gaman að fá nafnið sitt í bloggið þitt ;)
30. október 2007 klukkan 20:04
Mamma skrifar ...
Ég verð nú að viðurkenna að þú hefur haldið herberginu vel hreinu síðan. Og verði þér að góðu með þrifin á þetta inni hjá þér seinna:)
LOVE DYM
01. nóvember 2007 klukkan 22:25
Hrafnhildur skrifar ...
já .. ég get stundum verið smá klaufi =Þ hehe Gummi vinur minn úr Hamraskóla hringdi einmitt í mig um þar síðustu helgi og spurði hvað ég ætlaði að gera og ég sagðist ekki geta farið neitt því ég væri svo illa tognuð og hann bara já, þú hefur nátla ekki breyst síðan í grunnskóla hahaha :D og hann mundi eftir skiptunum þegar ég tognaði sem verst og sonna haha :D hvað get ég sagt, þegar ég er í íþróttum gef ég allt í þetta ;)
hei mig langar að sjá nýja herbergið vúhú :) -hvernig er nærfata skúffan?? ennþá fín??
þú ert svo heppin að fara til NY marr..tss. og svo Helga á Spice Girls .. mér finnst þetta nátla ekkki!! ganga upp svona stelpur mínar .. bíð eftir símtali frá ykkur þar sem þið segið að þið elskið mig svo mikið og ætlið að bjóða mér með ykkur :D -er við símann núna ;)

-Hrafnhildur ;*
08. nóvember 2007 klukkan 09:03
Pét skrifar ...
Jæja María, hvar er bloggið ha??? Núna er mánuður síðan þú bloggaðir, og samt nóg að frétta eins og New York, hvar ER bloggið? KV. einn örvinglaður og sjúklega sjúskaður typpalingur að læra fyrir próf, sem er æji það rímar ekkert við próf, og við sjáumst 10. des í ísrúntinum sem allir eru að bíða eftir!!
30. nóvember 2007 klukkan 14:13

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: María L. Guðjónsdóttir
  • Netfang: mariakjani@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...