09apríl
11mars
Allt að gerast! :)
Sæl veriði!!
Já.. ég er ekki alveg nógu dugleg að blogga kannski

Allavegana þá er allt að gerast þessa dagana! .. Formlegri kennslu í skólanum mínum er lokið. Það eina sem er eftir er alþjóðlegt próf úr náminu sem er á föstudaginn (14.mars). Ég mun reyndar ekki geta einbeytt mér jafn mikið að því og ég hefði viljað vegna þess að ég er að fara í inntökupróf fyrir leikaradeild LHÍ á laugardagsmorgun (15.mars) kl. 8.15 ..
Þar sem ég ætla loksins að láta drauminn minn rætast um að læra leiklist. Þetta er sem sagt fyrsta þrep og er ég búin að vera að læra 3 texta sem ég valdi mér .. Ég flýg að sjálfsögðu í gegnum öll 3.þrepin sem þarf að komast í gegnum til að fá skólavist
Það eru sem sagt 125 umsækjendur og af þeim fá að hámarki 10 skólavist... sem sagt ég og 9 aðrir
--
Það er alltaf svo erfitt að blogga þegar maður hefur ekki bloggað í langan tíma!
Allavegana þá er búið að velja framlag okkar Íslendinga til Eurovision og ég er mjög sátt! .. This is my life eftir Örlyg Smára (enskur texti: Páll Óskar) í flutningi Friðriks Ómars og Regínu Óskar var valið! Af þeim lögum sem kepptu á úrslitakveldinu var þetta mitt lag!
Hey, hey, hey, ho, ho, ho lagið var svona þeirra helsti keppinautur .. en ég tel að allar þessar auglýsingar og fleira sem var vikuna fyrir keppnina hafi frekar orðið þeim að falli! Grípandi lag samt sem áður .. en tjah .. ég var ekki til í að fá þau út til Serbíu.Mitt lag samt ef ég vel af öllum þeim sem kepptu í undankeppnunum var án efa Haffi Haff með lagið Wiggle wiggle song eftir Svölu Björgvins! Það var geggjað lag og þá í þeim búningi sem það var fyrst (það var atriðið sem ég féll fyrir)

---
Ég er líka komin með fullnaðarskírteini en eins og flest ykkar vita þá fékk ég mér ekki bílpróf fyrr en ég var 19 ára gömul.. þann 10.mars nánar tiltekið! Svo í gær þá missti ég prófið
og eins og hinn týpíski Íslendingur fletti ég upp á Gulu síðunum einhverjum ökukennara og hringdi til að fá tíma.. sem ég og fékk í morgun klukkan 10!
Ég keyrði í einhvern hálftíma og hún (já kennarinn var kona) var bara ánægð með mig.. ég er allavegana yfir meðallagi góður ökumaður og alveg svakalega jákvæð fannst henni! Svo ég er að fara til sýslumanns í Hafnarfirði til að fá fullnaðarskírteini
---
Næsta tilhlökkunarefni er svo afmælið hennar Árnnýjar sem er á laugardaginn þar sem við ætlum að djamma af okkur rassinn!
Svo er það út að eta með familíunni á Argentínu 22.mars
29.mars þegar ég held afmælið mitt !! (á samt afmæli 30.mars.. en 29. er laugardagur.. svo ég mun vera að halda upp á það þegar 30. brestur á )
9. apríl þar sem ég fæ að vita að ég er komin inn í leiklistarskólann
18-20.apríl því þá erum við Árnný úti í Köben í tívolíi og djamma með elsku Sigrúnu Yrju okkar
9-16.maí því þá fer ég með mömmu og pabba til Danmerkur sem hjálpari

oooooog
1. - 22.júlí þegar við systurnar förum til Tenerife!!

---
já! skemmtilegir og spennandi tímar framundan hjá undirritaðri!

--
Heyrumst;)
María - Busy!
13febrúar
Já sæll!!
Ath! Fyrirsögnin er tileinkuð Litla (ElínuHelgu)Já komiði sæl dömur mínar og herrar!
Ég ætla að glæða smá lífi í þessa síðu mína (maður getur sagt það ehaggi?)
neii ég held ekki æj whatever.. .. ég ætla að lífga þessa síðu mína við (ég get sagt þetta sko!) Já.. anyways! =)
Ég og Árnný skelltum okkur í smá ferð um helgina! Nánar tiltekið til Köben!
Við hófum ferðina í rauninni á fimmtudagskveldið.. Mamma ákvað að vera svo frábær og gefa okkur gistingu á Hótel Keflavík nóttina fyrir flug, reyndar held ég að það hafi verið meiri svona eiginhagsmunagjöf en eitthvað annað.. af því henni fannst betra að hafa okkur nær flugvellinum miðað við veðurspánna!
Við sem sagt keyrðum á Hótel Keflavík á fimmtudagskveld, skítafærð á Reykjanesbrautinni og var meðalhraðinn á okkur (án djóks) ca 50 km/klst.. enda sáum við ekkert og var meira svona happa-glappa hvort við værum á réttum vegarhelmingi!!
Þegar við komum á hótelið fengum við herbergi og chilluðum þar yfir sjónvarpinu og hentumst svo í sturtu! Þá kom í ljós að við gleymdum bursta... en ég er með ráð undir rifi hverju! svo ég greiddi bara hárið mitt með fingrunum (þó ég sé með litla hendur þá eru fingurnir ekkert alveg eins og bursti!!) en það gekk þó!

Við sofnuðum svo í ca 4 tíma og þá vöknuðum við og okkur var skutlað á flugvöllinn um 6!
Bíllinn var svo geymdur og allur þrifinn á meðan við vorum í Köben! 
Við innrituðum okkur sjálfar inn, sem var snilld og gerði það að verkum að við gátum chillað lengur í fríhöfninni!
Við fengum okkur morgunmat fyrst.. croissant og breezer
Þetta átti að vera djammferð sko!!
Svo keyptum við nauðsynja vörur eins og líter af vodka, opal-skot og svoleiðis
skelltum okkur á tvö tímarit eða svo og 30 pyslur! (án djóks, Sigrún Yrja þráði pylsur)Eftir mjög gott flug lentum við á Kastrup og skelltum okkur beint að versla í Fields. Sigrún Yrja var að koma úr skólaferðalagi seinna um daginn og hitti okkur þar! =) Við versluðum eitthvað smotterí og enduðum svo í svona Hagkaups búð og keyptum fyrir kveldið.. epla-bacardi, bland, ca 20 breezera og snakk minnir mig
Við nenntum að sjálfsögðu ekki að bera þetta í pokum heim til Sigrúnar Yrju (þurftum að fara í lest og strætó), vorum nottla líka allar með farangur svo við keyptum ferðatösku fyrir áfengið!
Og drösluðumst með þetta .. taskan var svolítið þung svo við fengum okkur alla sitthvorn breezerinn.. en bara til að létta á töskunni sko!
Þegar við komum í litlu, sætu og mjög svo smekklegu íbúðina hennar Sigrúnar Yrju pöntuðum við pizzu, fórum í sturtu, gerðum okkur klárar og fórum að sötra
Þegar við vorum orðnar netthressar kíktum við á barinn sem er í sama húsi og íbúðin er í. Þar fengum við okkur Smirnoff og fórum í frekar misheppnað pílukast en skemmtilegt samt sem áður .. og fótboltaspil sem Sigrún Yrja rústaði okkur í! Samt vorum við Árnný tvær á móti henni! .. Og hvað segir það okkur?! Sigrún Yrja var EKKI orðin nógu full!

Við skelltum okkur svo í strætó niður á Strik, þar fór Sigrún Yrja að bögga einhverja stráka
og einn þeirra snerti brjóstið á mér svo ég sló hann utan undir svo small í!! (Jább, mjög svo flott hjá mér! Sérstaklega miðað við mig, sem ekki er þekkt fyrir að slá svaka flott) .. og hann ekki sáttur og sló mig til baka! .. Sem var nett vont.. en ég er nagli.. svo við héldum djamminum ótrauðar áfram. Hey já! Svo nálgaðist þessi gaur okkur aftur og þá sló Sigrún Yrja hann með töskunni sinni.. váá það var snilld
Við fórum á bar sem heitir Dubliners (minnir mig). Þar var svaka góð hljómsveit og við gátum dansað uppi á borðum!! .. Svo tók hljómsveitin sér pásu ..! .. sem tók aldrei enda!! Svo við bara fórum annað.. sem var ekki gaman, svo við keyptum okkur pylsu í seveneleven og tókum taxa heim

Daginn eftir vöknuðum við um hádegi. Röltum í Fötex (hvernig sem ég skrifa það) og keyptum inn fyrir kveldið (snakk, smá bland og þannig). Svo fórum við Árnný á Strikið og Sigrún Yrja varð eftir til þess að kíkja aðeins í skólabók!
Ég og Árnný röltum um Strikið og keyptum fullt handa Elínu Helgu.. keyptum okkur reyndar McDonald´s
Um hálf 6 kom Sigrún Yrja og við átum á Jensen´s Böfhus (held að það heiti það) .. Fengum ágætis-steik.. þaðan lá leið okkar heim til SigrúnarYrju til að gera okkur sætar og byrja að drekka..
Þetta kvöld skelltum við okkur á bar/skemmtistað sem heitir A-bar .. eða Australian bar. Maður borgar reyndar inn .. en þetta var ofur skemmtilegt! Geggjuð tónlist og hellingur af sætum strákum sem maður gat dansað við
Við tókum með okkur opal og tópas skot þangað og ég var dugleg að drekka það, auk þess að skella í mig 2 tekíla, einhverju öðru skoti og drakk svo bjór frá 2 strákum sem voru með okkur um nóttina (strákur sem Sigrún Yrja þekkti og vinir hans). Og já.. þessi ákvörðun átti eftir að kosta mig heilsuna!
Þessi bjórar fóru mega illa í mig (og hitt dótið hafði sennilega líka áhrif) og ég endaði á því að æla.. reyndar var klukkan þá orðin allavegna 4 og tími til að fara heim hehehe... ég sem sagt ældi.. ofan í glas reyndar
áður en það gerðist datt ég aftur fyrir mig af barstól beint á gólfið og finn ég enn fyrir því í dag (enda nett hátt fall fyrir litla manneskju eins og mig)
Til að gera langa sögu stutta þá ældi ég frá því þarna, fyrir utan í smástund þar til stelpunum tókst að draga mig í leigubíl, ældi þar ofan í poka og endaði þessa sýningu mína inni á klósetti við vaskinn! ;) Þar til ég hafði hrært nógu lengi í hálskirtlunum á mér til að vita að ekki kæmi meira.. þá staulaðist ég inn í rúm og sofnaði/drapst.
Daginn eftir var ég vægast sagt ónýt! .. En eftir 2 æluferðir var ég orðin góð! .. Ég segi bara SEM BETUR FER VAR FLUGIÐ EKKI FYRR EN KL22.00!! haha .. svo við fórum í lest að vera 19.00.. og þaðan á flugvöllinn og gátum dundað okkur þar.
EN vÁ! Þessi ferð var svooooo frábær!! .. Í alla staði (já að æla var ekkert hápunkturinn en alveg þess virði).
Takk elsku besta Sigrún Yrja mín fyrir að gefa okkur húsaskjól og elda handa okkur og vera bara æðislegur djammfélagi og frábær stelpa

Við komum sem fyrst aftur .. (sennilegast 20.mars)
Og Árnný mín! ... Takk líka fyrir ferðina.. þú ert náttúrulega bara æðibitinn minn!!
Ég kveð að sinni!
María som elsker Köbenhavn!
22janúar
Innflutningspartý!!
Hæ!
Já! .. Á laugardaginn var haldið innflutningspartý!
Ég og Árnný nýttum daginn í að taka til og kaupa snakk og svona fyrir liðið!

Við blönduðum bolluna sem var fín af því leitinu til að maður varð fullur af henni
En já.. áður en fólkið kom ákváðum við Árnný og Fríða að borða saman.. við Fríða skelltum okkur á IndoKína á meðan að Árnný fór í sturtu .. En nei! þEgar við Fríða komum þangað þá var búið að loka! Vegna fyrirhugaðs niðurrifs á húsinu .. !! What! ..ég var ekki sátt.. var búin að þrá IndoKína heví lengi!!
Við enduðum að fá okkur pizzu á Hróa.. sem var mjög gott.. en samt ekki IndoKína

Svo fór liðið að tínast inn
og við skemmtum okkur bara mjög vel öll held ég! Drukkið, spjallað, hlegið, farið í SingStar og meira að segja dansað aðeins
Ég, Árnný, Fríða og Gústi gerðum þau mistök að fara niður í bæ um hálf 4! heheh .. Það var skítkalt.. alveg ágætis stemming samt .. en við hefðum átt að vera bara heima
Við stelpurnar enduðum á því að labba heim og ég var bara í þunnum jakka með ekkert utan um hálsinn svo ég fraus næstum
(vá loksins tækifæri til að nota þennan kall). En það tók svo sem enga stund að rölta heim! Þegar við komum þá voru Maggi, Pétur, Hrafnhildur og Hanna hérna . og þau voru öll næstum sofnuð
og var bara mjög kósí að hafa þau!Daginn eftir vaknaði ég skítþunn .. og við krakkarnir horfðum á Næturvaktina, borðuðum Hróa og Vesturbæjarís.. og það var svo gaman
Svo þegar stelpurnar voru farnar þá horfðum við Magg og Pétur á fyrri hálfleik hjá leik Íslendinga og Frakka
og það var bara ágætisstemming þrátt fyrir úrslitin
Við Árnný skutluðum strákunum svo heim og fórum á Berjavelli að borða mömmuhamborgara NAMM NAMM!

Vil bara þakka ykkur æðislega fyrir helgina og ég er ótrúlega þakklát fyrir að eiga svona frábæra vini
Love ya´ll 
Ykkar
María - back in the djammin´ ;)
14janúar
Nýtt ár!
Hæhæ!!
Gleðilegt nýtt ár! og takk kærlega fyrir það gamla!
Á þessu nýja ári hefur margt fréttnæmt gerst!! ..
Við skulum byrja á því allra fréttnæmasta - Ég hef EKKERT djammað það sem af er árinu.
Þetta er að sjálfsögðu hneyksli og mun þar breyting verða á næstu helgi!
Minni fréttir eru til dæmis að ég er flutt
Ójá.. litla stelpan sem kann ekki á þvottavél, veit ekki hvernig hún á að þrífa baðherbergi, rétt svo veit hvernig vaska á upp og taka draslið eftir sig hefur flutt að heiman! En engar áhyggjur... ég er flutti manneskju með mér af heimilinu til að sjá um svona .. hún er alvön og flutti 3x á síðasti ári .. svo hún kann þetta... ég er að tala um eldri systur mínar, Árnnýju! 
Við skemmtanafíklarnir fengum þessa frábæru íbúð í 101 Reykjavík sem er æðisleg!
Sambúðin gengur frábærlega.. þetta er eins og sleepover öll kvöld (enda sofum við alltaf í sama rúmi). Alla daga (nema þegar Árnný er að vinna, til að sjá fyrir okkur) þá er bara spjallað og hlegið.. þetta er í rauninni drauma-sambúð! ..
Ég verð samt að segja mér til hróss.. að ég hef vaskað upp í bæði skiptin sem það hefur verið gert !!
En Árnný henti í þvottavél.. svo þetta eru nú alveg jöfn skipti! ..
Við erum búnar að koma okkur mjög vel fyrir og leist ættingjum okkar vel á þegar þeir kíktu í kaffi til okkar 5.janúar s.l.

En já.. svona síðustu dagar hafa farið í ritgerð og svona skólastúss.. en því lýkur í kveld.. eða þ.e.a.s. ritgerðinni .. skólastúss heldur áfram fram í miðjan mars.
Um miðjan mars þá fer ég einmitt í inntökupróf fyrir leiklistarskólann! Ég hef ákveðið að leyfa leiklistarbakteríunni að fá almennilega útrás..!! .. Svo íslenskt leiklistarlíf!! Here I Come!!

Ooooooooooog fleira.. hmm... bara .. lífið er æðislegt..!

Ætli það sé samt ekki við hæfi að koma með smá svona "annál" .. segja frá síðasta ári í grófum dráttum!
- Ég byrjaði í ræktinni með mömmu .. sem endaði tjah .. frekar snögglega.. en náði samt af mér 5 kg .. sem hafa enn ekki látið sjá sig.. mér til ómældrar gleði.
- Ég endaði 2 og 1/2 árs samband mitt og Þórs.. og hef ég séð að sú ákvörðun var rétt.. ég lærði heilmargt af því sambandi og á fullt af góðum minningum sem ég mun eiga um alla ævi

- Ég byrjaði með öðrum kærasta mínum aftur, Bjarna. Við byrjuðum saman í apríl og áttum saman skemmtilegt sumar, með 2 "tjaldútilegum" .. Bjarni endaði það samband svo í lok ágúst. Ég var ekki sátt þá.. en er óendanlega fegin að vera sloppin úr því rugli í dag.
Held að í rauninni hafi verið nauðsynlegt fyrir mig að endurtaka það samband til að lifa í sátt við sjálfa mig .. fá svona endanlegt "closure" á hann. - Ég varð stúdent í maí og dúxaði í dönsku! Sem var snilld

- Ég byrjaði í Ferðamálaskóla Íslands og er búin að kynnast frábærum gellum þar!
- Árnný útskrifaðist sem viðskiptalögfræðingur og í tilefni þess var að sjálfsögðu haldið geðveik veisla og var djammað í ca 14klst! Djamm sem mun lifa í hugum okkar systra um aldur og ævi

- Pabbi var svo kosinn formaður alþjóðasamtaka MND á ráðstefnunni úti í Kanada..! Hann mun formlega taka við embætti í Birmingham í haust. Þess verður að geta að hann er fyrsti sjúklingurinn sem er kosinn formaður!
- Ég hóf ferðaárið í mars með ferð til Danmerkur! Þangað fór ég með MK! Hanna mín var með í fór og Jón Ingi! - Við fórum á tónleika með Fall out boy sem var geðveikt!, versluðum og nutum borgarinnar!
- Í júní héldum við mæðgurnar til London og þaðan til Króatíu í brúðkaup hjá elsku Thelmu og Hrvoje! Það var æðisleg ferð!
- Í ágúst fórum við systurnar til Tenerife í 3 vikur! Og mæ ó mæ var það góð ferð! Systratengslin urður sterkari og við flippuðum og skemmtum okkur endlaust vel! .. Mamma kom svo óvænt síðustu vikuna og nutum við þess í botn að vera allar saman!
- Í nóvember var svo haldið til New York!! - Öll fjölskyldan .. plús Unnur

Og vá.. þessi borg verður heimsótt aftur og aftur! Náðum að nota þessa 5 daga ótrúlega vel.. en eigum eftir að sjá og upplifa ótrúlega margt þarna!

-- Ég held að ég segi þetta gott að sinni--
Bæææææjó!
María - 2008!
30desember
María Superstar!! ;)
Hæææ! :)Ég verð nú barasta að henda inn smá bloggi og segja ykkur frá ýkt mega frábæru föstudagskveldi í lífi mínu!

Ég, Árnný og Sigrún Yrja ákváðum að skella okkur á ball á föstudaginn s.l. og var uppáhalds hljómsveitin okkar Árnnýjar að spila "Í svörtum fötum"
Ballið var haldið á Players og við komum á fínum tíma, Brynja var að selja miða og auðvitað gaf hún okkur góðan deal á miðunum .. takk takk fyrir það 
Svo stigu Jónsi og félagar á svið og byrjuðu að spila og við dönsuðum eins og brjálæðingar!!
Eftir að þeir hefðu spilað nokkur lög stoppuðu þeir aðeins og sögðu "Jæja í næsta lagi þurfum við að fá gestasöngkonu á svið" og allar stelpurnar öskruðu og réttu upp hönd og þeir héldu áfram "Það er upprennandi stjarna og hún heitir María og er þarna" Og svo var bent á mig!! .. Og ég hugsaði "vá, snillld... en sjitt fokk ég er pínu stressuð" Því það skal tekið fram að ég var bláedrú!!
og þá tóku þeir Rocky Horror lagið "Tökum eitt tíðhnitið enn" og ég var dregin upp á svið og söng kafla í því lagi og svo byrjuðu þeir að spila "I will survive" og ég átti bara að syngja það!! og ég kann ekkert alveg textann við það.. og var frekar svona sjokkeruð yfir þessu!! hehe :) en Jónsi bara söng með mér í mic-inn og dansaði við mig og þetta var baaara snilld.. enda uppáhaldshljómsveitin mín og ég meina hver vill ekki dansa og syngja með Jónsa??!! Fyrir utan Pétur kannski ;) hehe
Æjj þetta var bara mergjað og ég er ógeðslega montin og stolt af þessu ! 
En já... svo að ég útskýri kannski smá af hverju þeir vissu nafnið mitt og svona.. þá var ég sem sagt að syngja í leikriti MK vorið 2006 í Rocky Horror og þá sá Keli (gítarleikari Í svörtum fötum) um að þjálfa okkur sem vorum að syngja....og ég pældi einmitt í því hvort að hann myndi eftir manni síðan þá... og well... GREINILEGA


Ég vildi bara deila þessu með ykkur kæru lesendur ;)
Kveðja,
María - Í svörtum fötum!
27desember
Ahhh...
... vá hvað maður getur borðað endalaust yfir jólin!Ég er reyndar nývöknuð núna svo ég er lítið sem ekkert búin að borða í dag en síðustu dagar hafa verið fínir í þeim málum!
Enda jólin!!Aðfangadagur var ótrúlega nice, við borðuðum reyndar í seinna laginu eða klukkan 19.20, enda ekkert að flýta okkur neitt!!
Þá var borðuð rjómalöguð jólaaspassúpa í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og svo búðingur í eftirrétt (átum hann reyndar eftir pakkana). Eftir matinn gengum við systurnar aðeins frá eða reyndar gekk Árnný aðalega frá
og við hin meltum aðeins! Við tókum svo upp pakkana sem er alltaf jafn gaman !!
Ég fékk alveg margt og mikið í jólagjöf en besta gjöfin er án efa gjöfin frá mömmu og pabba en hún er í raun alveg ómetanleg!! Enda fór ég að gráta þegar ég fékk hana og já.. vá.. kom mér ótrúlega á óvart.. en ég vil ekki segja hvað það er hérna á veraldarvefnum

Við systurnar ákváðum að skella okkur í miðnæturmessu í Fríkirkjunni í Reykjavík! Páll Óskar og Monika sáu um tónlistina og þetta var algjörlega þess virði að skella sér! Held að við gerum þetta að árlegum viðburði! Meira að segja Elín Helga skemmti sér!!
Eftir það fórum við heim og spiluðum Partý&Co! :) Þetta var ofur nice aðfangadagskvöld eins og áður kom fram

Á jóladag var svo rólegheitadagur dauðans! Maður át afganga og nammi og svo var horft á sjónvarp! Bara öll fjölskyldan saman í rólegheitum!
Í gær (annan í jólum) þá var jólahangikjöt hjá ömmu&afa og kartöflusalatið hennar ömmu var með (og það er ofur gott!!) við borðuðum bara í rólegheitum og svo skelltum við Árnný okkur í bíó með Sigurjóni og Jonna á mynd sem heitir "We own the night". Hún var mjög góð! Eftir það fengum við okkur pizzu og svo horfði ég á "The Holiday" með mömmu.. úff þetta er svoooo góð mynd! Ef að þú hefur ekki séð hana .. SJÁÐU hana!!
Jáh .. í dag er planið að reyna að klára ritgerð sem ég þarf að skila 7.janúar, hef litlar áhyggjur af henni svo sem.. svo er helgin plönuð! og svo eru áramót! Sem er skemmtilegasti dagur í heimi finnst mér.. allavegana skemmtilegasta kvöld!
Þá ætla ég á Broadway! Svo komið þangað allir!!
OG JÁ!! Fréttir, fréttir !! Ég og Árnný erum að fara að leigja saman! Íbúð á Bræðraborgarstíg í 101 Reykjavík!! 3ja herbergja íbúð, 74 fermetra!! Við flytjum inn fyrstu helgina í janúar! allavegana ekki seinna
Fáum hana væntanlega afhenta milli jóla og nýárs! Til hamingju við!!! 
En jáh, ég er farin út að skafa bílinn og skella mér og sæka Litla (Elínu Helgu) í vinnu..
Vona að þið hafið átt frábær jól!! og komið á Broadway með mér um áramótin!!

Ykkar,
María - jólabarn!
17desember
Undur og stórmerki!!
Hæ!!Hvað segiði gott?!?!
Það er á hreinu á kraftaverkin gerast enn og er þetta blogg sönnun þess!
Jáhh... síðan 30.október hefur ýmislegt gerst....
Ég fór til New York! .. Sem var frábær ferð í alla staði!! .. En hún gekk nú ekki klakklaust fyrir sig skal ég segja ykkur!! =P ég ætla að rita smá ferðasögu hérna .. allavegana að segja ykkur frá því sem úrskeiðis fór!
Við komum upp á Keflavíkuflugvöll þann 21. nóvember í góðum gír - Ég, mamma, pabbi, amma Árnný, Árnný, Elín Helga og Unnur (vinkona Elínar Helgu og æðislegasta stelpa í geimi) =). Við tékkuðum okkur inn og mamma og pabbi fóru að ganga frá hjólstólnum hans pabba og svona .. og þá sé ég að amma er alveg kríthvít og sveitt í framan og kvartar yfir verkjum fyrir ofan magann eiginlega.. ég segi henni að koma og setjast með mér.. og við gerum það. En svo lagast þetta og við pælum ekkert meira í því. Svo fáum við okkur að eta og verslum smá.. og svo þegar það er hálftími í flug fær amma aftur svona .. og hún kvartar aðeins.. og amma kvartar ALDREI!! Þá ákváðum við að ath hvort að læknir væri í byggingunni og var kallað á lækni og við vorum heppin að það voru 2 læknar á leið út og voru báðir sammála um að senda ekki ömmu í 6 tíma flug án þess að athuga hvort allt væri í lagi!.. Svo amma var send með sjúkrabíl í bæinn!!
En já.. vegna þessa þá varð taskan hennar ömmu að fara úr vélinni, það var búið að hlaða hana svo það tók tíma og varð seinkun á vélinni vegna þess.. við gáfum mjööög góða lýsingu á töskunni ... en þegar við komum svo út .. þá höfðu þeir tekið vitlausa tösku!! .. Sem sagt einu töskuna sem ég og Árnný vorum með! Öll fötin okkar! snyrtidót! og annað!
Það er kannski ekki skrítið að þeir hafi tekið vitlausa tösku af því hún var merkt Árnnýju .. og hún og amma eru alnöfnur .. og þær einu sem bera þetta nafn =P hehe =)
En jáá.. svo gerðist það annan daginn okkar að spennubreytirinn fyrir hjólstólinn hans pabba bilaði ! Svo að hann þurfti bara að spara batteríið og hanga í herberginu sínu .. og við færðum honum mat þangað og svona ;) Svo sólahring síðar ca þá fannst innstunga þar sem hægt var að stinga stólnum í samband svo hægt var að hlaða hann!! =p sú innstunga var í "Ballroom"-inu á hótelinu ;) Það má allavegana taka fram að hótel starfsmenn voru æðislegir og reyndu allt til að redda öllu í sambandi við stólinn!!
Og já... mamma og pabbi flugu svo út til Kanada á sunnudagsmorgni og við flugum heim á mánudagskveldi... og á sunnudagseftirmiðdeginum ákváðu kortin okkar allra að klikka!! samkvæmt heimabankanum vorum við Elín Helga í mínus 8milljónum!! og Árnný í mínus 3 milljónum og ég veit ekki hvað og hvað!!
En já... það voru líka góðir punktar í ferðinni..
- Við versluðum endlaust!! Fundum æðislega verslunargötu í Soho..
- Voru á hóteli og 47th street..rétt hjá 5th anvenue og ég sá Empire state frá herbergisglugganum mínum á hótelinu!
- Vorum í VIP svítu
- Fékk alvöru Thanksgiving máltíð!
- Fórum í limmu út á flugvöll
- Fórum á Madame Tussaud safnið! .. og röltum á Times Square ( tók okkur ca 7 míns frá hótelinu)
- Sáum geggjaðar kirkjur og geggjað bókasafn!
- Sáum íkorna í Central Park
- Fórum í flottu Apple-búðina..
- Sáum Trump-tower..
- ..og fleira og fleira og fleira...
- Upplifðum rigningu, -7 stiga frost og 15 stiga hita!
- Byrjuðum að versla kl. 6 um morguninn í H&M þar sem var 25% afsláttur af öllu til hádegis!!
Ég elska New York og ætla þangað aftur og aftur og aftur!!
Ég var mjög heppin samt! ...Ég var með svakalega hálsbólgu í viku.. sem lagaðist 3 dögum áður en ég fór út!!.. Hálsbólgan var þannig að það kom neitun úr streptakokka prófinu og mér var sagt að þetta myndi lagast bara.. en hún versnaði svo ég var aftur sett í test.. og það kom aftur neikvætt.. en fékk samt pensilín! .. sem sló fyrst ekkert á hálsbólguna.. svo ég fór í blóðprufu! .. en svo fór pensilínið að virka.. svo mér batnaði smám saman!! .. Thank god!
---
Ég var svo rétt í þessu að fá þær fréttir að hún Elín Helga mín sem var að taka þátt í söngkeppninni í sínum skóla lenti í 1. sæti!! og 3. sæti!! .. Þær sungu sem sagt 3 saman 2 lög... Escape (1.sæti) og She Will Be Loved(3.sæti). OG vá hvað ég er stolt!!! enda að fylgja í fótspor stóru syst
oG JÁ!! Svo er Ása! Mín elsta og besta vinkona ólétt!! =D og á hún að eiga lítið kríli föstudaginn 13.júní! ;) =* Til hamingju með það sæta mín!!
Svo er Thelma frænka ólétt líka! og er lítið kríli væntanlegt þar 25.maí! =D
OG svo eignaðist ég litinn frænda 16.nóvember síðast liðinn! Og er hann gullfallegur! .. Hann var skírður 12.des og hlaut nafnið Eyþór
Barnalán í kringum mann sko! =D
---
Núna er ég komin í jólafri.. þarf reyndar að skrifa eitt stykki ritgerð fyrir 7.janúar um Kanada.. en það reddast! ;)
Er að vinna á hverjum degi til jóla en svo er ég alveg í fríi! =) snilllld, snillllld...
---
Jæja..! .. ég er farin!.. ætla ekki að lofa neinu um næsta blogg ;) Þið skuluð bara vera þakklát fyrir það sem þið fáið
ást,
María Yeah!
P.S. !! Ég og Árnný ætlum að fara að leigja saman... og erum að leita okkur að 3ja herbergja íbúð helst í 101.. allavegana nálægt!.. Svo ef að þið vitið um íbúð á þeim stað og ágætu verði! .. Þá megiði endilega láta oss vita..! Takkkktakkkk!
30október
Snjór.. eða hvað? :P
Helló! =)Jahá.. snjór féll hér fyrir helgi.. Ég er ekki mikill aðdáandi hans ef satt skal segja


Enda ekki bretta eða skíðamanneskja svo mér finnst ekkert svakalega gaman að hafa snjó. Mér finnst það alveg smá kósí og hann má alveg vera hérna á aðfangadag! En ég fíla ekki alveg kuldann sem fylgir honum og að þurfa að skafa og svoleiðis Eeeennn hann stoppar nú ekki lengi, komin rigning og er hann að mestu farinn..Um helgina var haldið í smá road-trip. Það var afmæli hjá Magga og Pétri á laugardag. Það var haldið á Laugabakka sem er svona 2 tíma og 30 míns frá bænum. Ég fór ásamt Krissa, Helgu, Hönnu og Ingunni í bíl.. við lögðum af stað úr bænumum 18.00.. okkur seinkaði smá vegna þess að starfsmenn Heiðrúnar eru fávitar
Nenni svo sem ekkert að fara nánar út í þá sálma .. ég allavegana nenni aldrei að fara þangað aftur! Nei takk! Við stoppuðum og fengum okkur að borða í Hyrnunni og vorum komin á leiðarstað um 20.30. Þá var fólkið komið.. við byrjuðum bara að drekka og skemmta okkur. Þetta var bara mjög skemmtilegt.. allir gistu þarna. Þetta er svona félagsheimili svo allir sváfu bara á dýnum! Fólk var alveg í misjöfnu ásigkomulagi! Haha .. og voru nokkrir sem dóu bara.. en enginn í okkar vinahóp.. enda partýdýr mikil! Ég var nú aðalega að skemmta mér með Ingunni minni og vorum við í góðum fíling með bling-blingið okkar
Lögðum svo af stað heim daginn eftir um 13 leitið.. stoppuðum og borðuðum smá í Staðarskála og svo í bæinn =) Ég vann svo um kveldið .. Ég svaf 3 og hálfan tíma um nóttina svo ég var nett þreytt

Eini mínusinn við ferðina var að Hrafnhildur mín komst ekki af því hún er helvítis klaufi sem tognaði svona illa þegar hún var aaaaðeins of dugleg á jazzballet æfingu
ALGJÖR klaufi! ...Hittumst reyndar og fórum á ísrúnt í gær ásamt Helgu svo það var smá bót á máli =DÍ gær var svo farið í ræktina .. ég og Árnný erum svo duglegar! .. EN já.. af þvi að þetta var busy-helgi og ég er ekki alveg nógu dugleg ung stúlka þá hafði ég ekki lært mikið undir próf sem við tókum í gær í skólanum. Það var sem sagt úr 2. kafla sem heitir "Geography in Travel Planning 1" þar eru kóðarnir góðu einmitt og fleira og fleira. Ég er samt alltaf mjög róleg yfir svona prófum. Og ég fékk 7,4 og bara mjög sátt. Miðað við að fólk var að fá svipað og ég og kannski einum hærri sem var búið að lesa og læra kannski alla helgina
Geta ekki allir verið svona klárir eins og ég sko!
Ég er allavegana pollróleg fyrir lokaprófið sem verður um miðjan mars. Þarf kannski bara að lesa aðeins í bókinni minni! Það er allavegana ekkert slæm hugmynd! 
Jáá...
Ég verð nú líka að segja ykkur eitt! Þegar ég kom heim frá Laugum fyrir viku sem sagt. Þá var hún yndislega móðir mín búin að taka alveg til í herberginu mínu, sem sagt taka drasl, þurrka af, ryksuga og gera allt svona "mömmufínt" ef þið vitið hvað ég á við með því. Kannski er það bara orð sem dekurrófur eins og ég skilja
Og hún var búin að breyta smá af því ég var búin að tala um smá breytingar sem ég vildi gera... þetta var svo nice! .. Enda er ég búin að vera mega dugleg að halda því hreinu!!
TAKK elska mamma mín! 
Í kvöld ætla ég bara að vera róleg og kannski horfa á eina dvd-mynd. Hef ekki gert það bara í áraraðir! =D
OG! Það eru aðeins 22 daga í New York sem ég get ekki beðið eftir! .. Ég hef aldrei hlakkað jafn mikið til utanlandsferðar. Er alveg ótrúlega spennt! Þetta verður ÆÐI!
En yfir og út!
María - dekurrófa!

